Íslenskur gluggi,
fyrir íslenskt veðurfar

  • Forsíða
  • Vörur
  • Myndir
  • Fyrirtækið
  • Hafðu samband

Enginn fúi, ekkert ryð, engin málningarvinna

Gluggar úr PVC-u eru viðhaldsfríir, sem þýðir að þú þarft aldrei að mála þá, þeir ryðga aldrei né fúna og þeir hafa mikla hita og hljóðeinangrun. Útlitsmöguleikar eru óteljandi þar sem þeir eru sérsmíðaðir samkvæmt þínum óskum.

Gluggaefnið kemur frá Deceuninck í Þýskalandi sem er leiðandi fyrirtæki í pvc-u framleiðslu og hefur framleitt plastefni frá árinu1937.
Hafðu samband og við gerum þér tilboð, þér að kostnaðarlausu.

Gluggarnir okkar voru settir í slagveðurs-þéttleika og álagspróf hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og stóðust mesta álag án athugasemda. Prófið má sjá hér

                     

 

Af hverju að velja glugga frá PGV Framtíðarform?

1. Íslensk framleiðsla    

Þú styður ekki aðeins íslenska framleiðslu með því að velja glugga frá PGV Framtíðarform ehf, þú ert einnig að tryggja þér fulla þjónustu og hraða afhendingu.
Þú ert í öruggum höndum hjá okkur.

 

2. Glerjað að innan, öryggisins vegna

Þetta þýðir að glerlistarnir eru að innanverðu og því ómögulegt að spenna þá upp að utanverðu. Þessi smíðalína er sérstaklega vottuð sem öruggari gagnvart innbrotum frá ACPO ( Association of Chief Police Officers) í Bretlandi og húsnæði með svona gluggum kallast "Secured by design"

Einnig koma okkar gluggar alltaf með barnalæsingu og næturöndun í læstri stöðu. Læsingarpinnar opnanlegra faga ganga í sitthvora áttina, sem eykur enn á öryggið.
Hurðir koma fullbúnar með 5-punkta læsingum.

 

3. Póstar eru bræddir saman

Ytri ramminn er ekki aðeins bræddur saman heldur eru millipóstar einnig bræddir við ytri rammann. Engar líkur eru þess vegna á ryðtaumum eða vatnsleka gegnum samskeyti, þar sem glugginn er ein heild, brædd saman. Slagveðursprófið frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sýnir ótvírætt kosti bræddra pósta.

 

Nánar um gluggana

Smíðaprófíll Deceuninck 2500 Chamfered 70x70mm, marghólfa með frárennsliskerfi. Þýskaland   
Styrking galvaniserað stál  
Glerjun 28-40mm low E, K-gler, glerjað að innan  
Litur Hvítt (RAL 9016), Golden Oak og Rosewood - SKOÐA  
Hljóðeinangrun 32-39db, mismunandi eftir glertegund  
Lamir/opnun Topp- og hliðarhengdar, björgunaropslamir Öryggisveltigluggar (fully reversable)  
Einangrun K-gildi:1.4W/fm , miðað við 4/20/4 mm low-E glært K-gler, breytilegt eftir glertegund  
Umhverfi PVC er 100% endurvinnanlegt efni. Engin eiturefni notuð til viðhalds. Engin tré felld. MEIRA  
Öryggi Glerjað að innan, barnalæsingar og næturopnun í læstri stöðu  

 

Ísetning og þjónusta

PGV Framtíðarform ehf leggur mikla áherslu á fagmennsku í smíði og uppsetningu, því allt þarf þetta að haldast í hendur svo útkoman verði sem best. PGV Framtíðarform ehf getur að sjálfsögðu séð um uppsetningu á gluggum, hurðum, sólstofum og svalalokunum. Reynsla í uppsetningu er mikilvæg til að tryggja að viðhaldsfrítt efni virki rétt og starfsmenn PGV Framtíðarforms ehf hafa áratuga reynslu af uppsetningum. 

Gluggi í Glugga

Þessi vinsæla aðferð snýst í stuttu máli um það að hreinsa burt gler og pósta úr gamla tréglugganum og leggja svo nýja plastgluggan í glerfalsið á þeim gamla.

lesa meira
Borun á gluggum

Leiðbeiningar ásamt myndskýringum hvernig ísetning fer fram.

lesa meira
Innbrotavörn

Smíðalínan okkar er með vottun ACPO, sem þýðir að þú gerir heimilið þitt eða fyrirtæki öruggara gegn innbrotum með gluggum og hurðum frá okkur.

lesa meira

Vörur

  • Gluggar
  • Hurðir
  • Sólstofur - Svalalokanir
  • Rennihurðir
  • Myndir
  • Um okkur

PGV Framtíðarform ehf - Seljabót 7 240 Grindavík sími 510 9700 - Fiskislóð 45 101 Reykjavík sími 510 9710
pgv@pgv.is