Viðhaldsfríar rennihurðir - 6 punkta læsingar
Rennihurðirnar frá PGV Framtíðarform ehf eru sérsmíðaðar eftir þínum málum, þær hafa sannað sig í íslensku veðurfari, og eru 100% vind- og vatnsþéttar. Fegraðu heimilið og auktu verðgildi eignarinnar með rennihurð.

Sérsmíðaðar eftir málum
Rennihurðirnar eru sérsmíðaðar eftir þínum málum og get verið mest 4.9 m breiðar og 2.4m háar.
Þær geta verið tvöfaldar sem þýðir ein föst rúða og önnur sem hreyfist öðru hvoru megin. Þreföld þar sem eru 2 fastar rúður og ein hreyfanleg eða fjórföld þar sem tveir rúðuflekar hreyfast í miðjunni og tveir eru fastir sitt hvor megin. Þær eru með tvöfaldar þéttingar og frárennsliskerfi.
Ísetning rennihurða
Til að rennihurð virki rétt og haldist viðhaldsfrí þarf að beita réttum aðferðum við ísetningu. Með því að smella á tengilinn hér að neðan má sjá skref fyrir skref hvernig setja á upp rennihurð frá PGV Framtíðarform ehf