Sólstofur og svalalokanir fyrir íslenskar aðstæður
PGV Framtíðarform er eitt af fáum fyrirtækjum sem hefur starfsmenn með áratugareynslu af smíði og uppsetningu á sólstofum. Með því að velja PVC-u sólstofu frá PGV Framtíðarform ehf ertu að auka verðgildi fasteignar þinnar og tryggja þér viðhaldsfría sólstofu.
Þökin, sem geta verið glerjuð eða þá með 35mm polycarbonite einangrunarefni, koma frá Ultraframe Bretlandi þar sem þau eru t.d. vindálagsprófuð í a.m.k. 58m/s.
Óteljandi útlitsmöguleikar
Sólstofan eða svalalokunin er sérsmíðuð eftir þínum óskum, hún er 100% vind- og vatnsþétt, glerjuð með 28mm K-gleri og 10 ára ábyrgð er á PVC efninu.

Ísetning
Gísli Jóhann Sigurðsson húsasmíðameistari og framkvæmdastjóri PGV Framtíðarforms leggur mikla áherslu á fagmennsku í smíði og uppsetningu, því allt þarf þetta að haldast í hendur svo útkoman verði sem best. PGV Framtíðarform ehf getur að sjálfsögðu séð um uppsetningu á gluggum, hurðum, sólstofum og svalalokunum. Reynsla í uppsetningu er mikilvæg til að tryggja að viðhaldsfrítt efni virki rétt og starfsmenn PGV Framtíðarforms ehf hafa áratuga reynslu af uppsetningum.